Svo þegar þeir loksins nást....
6.9.2011 | 19:03
.... þá munu þeir segja það klassíska sem barnaperrar segja alltaf: "við vorum bara að rannsaka hversu vel upplýst börnin eru um að það eigi ekki að þiggja far með ókunnugum" og/eða "við vorum að þessu til að vernda börnin fyrir öðrum barnaperrum".
Ég er nú ekki mjög trúuð en ég trúi því að til sé sérstakt helvíti fyrir svona "sub-humans"
|
Enn reynt að tæla barn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Velkominn heim Karl Magnús
16.6.2011 | 17:31
Vonandi færðu að enduraðlagast íslensku þjóðfélagi án þess að fá yfir þig mikið skítkast frá þeim dómhörðu, sem halda að best sé að loka fólk inni og henda lyklunum. Ekki láta neinn sannfæra þig um að þú sért annars flokks þjóðfélagsþegn. Þú öðlaðist dýrmæta reynslu sem gæti nýst þeim sem ennþá sitja í erlendum fangelsum og eiga eftir að koma heim til Íslands.
Þú ert búinn að greiða þína skuld við samfélagið og átt rétt á öðru tækifæri eins og allir aðrir.
Hafðu það sem allra best :)

|
„Bestu mistök lífs míns“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
ÞESS vegna heitir þetta ÍSLAND
23.5.2011 | 21:39
Svona Á Ísland að vera! Hvaða væl er þetta í fólki að "sumarið eigi að vera komið"? Ef fólk vill ekki snjókomu, rigningu, rok og öskubyl þá á það ekkert að búa hérna! Get svarið það að fólk verður ekki ánægt fyrr en gróðurhúsaáhrifin hafa valdið því að við þurfum að fara í 5 mínútna sturtur úr endurunnu hlandi eins og aumingjans fólkið í Ástralíu.... og þegar það verður orðið svo mikið af skóglendi/hita/þurrki hérna að það verða árlegir skógareldar eins og í Kaliforníu 
Áfram ÍSland! Lovjú just as jú ar 
|
Allt á kafi í snjó á Egilsstöðum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Lilja: eineltið er hrós
22.12.2010 | 07:55
Skítkastið sem Lilja fær frá þessu liði sýnir einfaldlega að hún er að gera góða hluti. Fyrir mér er þetta orðið einfalt - ef "flokkurinn" (alveg sama hver af þeim það er) rís upp á afturlappirnar þá jafngildir það gæðastimpli.
Vonandi gefst Lilja ekki upp þó þetta sé örugglega afskaplega þreytandi. Þegar/ef flokkakerfið verður afnumið þá mun ég a.m.k. muna eftir öllum þeim góðu tillögum sem hafa komið frá Lilju. Eins og ástandið er þá er ekki hægt að kjósa öðruvísi en að skila auðu þó það sé fullt af góðum einstaklingum í framboði. Ég ætla ALDREI að kjósa flokk aftur. Mig langar hins vegar að kjósa fólk eins og Lilju á þing, helst vildi ég sjá hana sem forsætis- eða fjármálaráðherra.
|
Lilja lögð í pólitískt einelti |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nornaveiðar og ekkert annað
28.9.2010 | 18:43
Ég verð seint sökuð um að vera einhver aðdáandi sjálfstæðiflokksins og stjórnmálamanna innan hans raða. En mér finnst ótrúlegt að menn séu að fá útrás fyrir blóðþorstann á einum manni sem ber ekki ábyrgð á þessu hruni frekar en Björgvin G eða hin.
Bara vegna þess að sakir raunverulegra sökudólga eru fyrndar þýðir ekki að það VERÐI að hengja bara EINHVERN. Til hvers er verið að þessu? Er verið að nota einhverja pólitíska taktík til að róa "heimskan lýðinn" með þessu? Hefur Alþingi ekki meira álit á okkur en þetta?
Það hefði verið betra að sleppa þessu illa leikna leikriti alveg, þetta er farið að minna óþægilega á nornaveiðar miðalda.

|
Þungbær og erfið niðurstaða |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Áfallahjálp??
17.9.2010 | 18:32
Á þetta að vera brandari eða hvað er eiginlega málið með að allir þurfi áfallahjálp við öll möguleg og ómöguleg tækifæri núorðið - hverslags eiginlega ofurviðkvæmni er þetta??? Já, þetta er leiðinlegt fyrir alla viðkomandi.... en come on!
|
„Þrautskipulögð árás“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Skuldurum er þá væntanlega í sjálfsvald sett hvort þeir borga
2.7.2010 | 09:05
.... samkvæmt "leiðréttingu" SÍ og FMR eða Hæstarétti Íslands.
Svo geta þeir sem urðu fyrir eignaupptöku væntanlega farið og tekið ýmsa fastafjármuni sem veð gegn endurgreiðslu sbr. þessi maður: http://eyjan.is/2010/07/01/reidin-magnast-segir-lysingu-skulda-ser-og-stal-thvi-bil-sem-tryggingu/

![]()
|
Í sjálfsvald sett |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gylfi notar elstu áróðursaðferð í heimi - etur fólki saman
24.6.2010 | 22:52
Í stað þess að snúa ábyrgðinni af ömurlega lélegri efnahagsstjórn ríkisstjórna fyrri ára upp á lántakendur erlendra lána núna ætti hann að snúa málinu rétt en ekki á hvolf.
Í fyrsta lagi skil ég ekki þetta nýja hugtak "erlendir vextir". Eru til einhverjir sérstakir "erlendir vextir"? Vextir eru bara prósentutala og tölurnar 1-6 hafa hingað til verið til á Íslandi eins og annars staðar. Þegar mér var kennt að telja upp á 10 þá var byrjað á tölunni 1.
Í öðru lagi væri hægt að koma á þjóðarsátt um allt þetta mál með því einfaldlega að setja 6% flata vexti á öll lán, íslensk og erlend, fella niður þessa helvítis verðtryggingu, stytta öll húsnæðislán niður í 30 ár og gefa þannig öllum "vildarkjörin" svokölluðu - nota bene þau kjör sem flest lönd í kringum okkur bjóða uppá, þ.á.m. Bandaríkin. Ég er ósammála Þór Saari að USA sé eitthvað villta vestur fjármála. Ef þeir geta boðið óverðtryggð húsnæðislán á 6% vöxtum til 30 ára þá getum við það líka - það eina sem óvitarnir á Alþingi þurfa að gera er að halda verðbólgunni niðri (eins og stefnan er jafnan hjá þeim en virðist sjaldnast virka því þetta lið þarf alltaf einhver efnahagsleg hjálpardekk eins og leikskólakrakkar, sbr. Ólafslögin og/eða gjaldeyrishöft).
Í þriðja lagi er ekki bæði hægt að segja að eitthvað sé ósanngjarnt og sanngjarnt á sama tíma. Ef dómurinn er svona sanngjarn hvers vegna er þá talað um "vildarkjör" á sama tíma? Það er ekki verið að gera NEITT annað hérna en að fá lántakendur íslenskra lána til að hugsa "jahá, hann stendur með MÉR á móti ÞEIM". Elsta stjórnunartæki stjórnmálamanna frá upphafi vega, að koma hinum ýmsu þjóðfélagshópum upp á móti hver öðrum. Við sjáum þetta t.d. milli svartra og hvítra, múslíma og kristinna, ísraela og palestínumanna og svo mætti lengi telja. Tilgangurinn er aðeins einn - að beina athyglinni frá kjarna vandamálsins.
Í fjórða lagi finnst mér undarlegt að hafa "ekki verið undirbúinn" undir þennan dóm. Þá er ekki seinna vænna en að undirbúa sig undir næsta dóm Hæstaréttar, þennan sem MUN snúa að þinni heittelskuðu verðtryggingu - hvað gerist þá? Þegar Hæstiréttur dæmir hana á skjön við Mannréttindasáttmála Evrópu eða sambærilega við okurlánastarfsemi eða eitthvað álíka, hvað gerist þá? Á þá að snúa öllu á hvolf aftur og segja "ekki hægt að bjóða lántakendum íslenskra lána "vildarkjör" umfram lántakendur erlendra lána"?
Arrrrrrrrrrrrrrrrrrrrrg! 
|
Samningsvextir haldist ekki |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sko bankann minn!
24.6.2010 | 10:21
Þeim er þá ekki allsvarnað - myndi samt vilja hvetja þá til að taka skrefið til fulls og leiðrétta lán til sinna viðskiptavina á réttlátan hátt miðað við dóminn. Það myndi þá kannski neyða hina bankana til þess að gera það sem er RÉTTLÁTT burtséð frá því hvað ráðherrar og seðlabankastjórar hér á landi eru að röfla.
Ég endurtek það sem ég sagði í fyrri færslu - það er enginn að GEFA lántakendum eitt eða neitt í þessu. Bankarnir tóku erlend lán í góðærinu á svo til engum vöxtum, endurlánuðu svo með álagi til almennings - svo þegar allt hrundi þá voru þessi erlendu lán annaðhvort þegar uppgreidd eða þau hafa verið afskrifuð.
Eitt sem vert er að taka fram - erlendu lánin ýttu undir verðbólgskotið líka þannig að þau eru beint og óbeint ástæðan fyrir því að verðbætur á íslensk lán fóru upp úr öllu valdi. Þess vegna ÞARF AÐ LEIÐRÉTTA VERÐBÆTUR Á ÞAU LÍKA. Fyrr verður ekki friður um fjármálafyrirtækin í þessu landi.
|
Íslandsbanki mun áfram uppfylla eiginfjárkröfu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Lánafyrirtæki fengu ódýr lán að utan, endurlánuðu til okkar
24.6.2010 | 07:12
.... og græddu á því. Annaðhvort löngu búin að borga það aftur eða það hefur allt verið afskrifað. Afhverju er verið að halda því fram að bankarnir *tapi* einhverju ef dómurinn fær að standa?
En það skal sko passa uppá að almenningur fái enga sanngirni. Djöfull er þetta lið heimskt ef það heldur að maður verði hér mikið lengur. Maður nennir ekki einu sinni að mótmæla þessu pakki lengur. Ef dómurinn fær ekki að standa og ekkert verður gert í sambandi við verðtryggðu lánin þá verður enginn eftir hérna til að borga eitt eða neitt.

|
Eftirstöðvar sexfaldast |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Lélegt
28.4.2010 | 19:02
Undarlegt að ekki nokkrum manni hjá þessari stofnun hafi komið í hug að þetta væri á verulega gráu svæði og svo er bara gráu bætt ofan á svart með því að viðurkenna það ekki.
Það hefur ekkert breyst hér - stofnanafæðan heldur ennþá að allir séu heimskir og/eða blindir.
Spes 

|
Stendur við fyrri yfirlýsingar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
*Jon Stewart myndi segja "Kevin" haha
21.4.2010 | 17:40
*Athugull lesandi leiðrétti mig, það var ekki Stephen Colbert heldur Jon Stewart sem segir "Kevin". Hinsvegar kallar Colbert Eyjafjallajökul "þúmuntsofaáflugvellinum" - sjá hér 

|
Nafn nýrrar eldstöðvar verði boðið upp á eBay |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Blekkingarleikur
5.3.2010 | 06:50
Þetta snýst fyrst og síðast um að fyrirvararnir frá því í ágúst fái að halda sér en að þeir verði ekki teknir út í Icesave frumvarpi nr. 2 frá því í des 09. Þó ekki væri nema vegna þess að það var þó einhvers konar consensus milli stjórnar og stjórnarandstöðu (a.m.k. hluta hennar).
1. Tímaþakið 2024 er farið út, það á ekki að leyfa að endursamið verði árið 2024 þegar verða alveg pottþétt uppi allt aðrar efnahagslegar forsendur.
2. Vextir hafa verið teknir út sem forgangskröfur í þrotabú LÍ, verða þess vegna almennar kröfur (aftar í röðinni) og lenda því óhjákvæmilega á ríkinu.
3. Ákvæði um skiptingu úr þrotabúi Landsbankans - fáum bara helming úr því upp í íslenska tryggingasjóðinn (ef ég skil það rétt, endilega leiðréttið ef ég er að misskilja). Þetta meikar a.m.k. ekki sense afþví að við ábyrgjumst upp að EUR 20.000 markinu - allt sem kemur eftir það ætti ekki að forgangsraðast FRAMFYRIR það sem tilheyrir breska tryggingasjóðnum). Þetta er algjörlega óskiljanlegt ákvæði í nýja frumvarpinu.
4. Núna eiga bresk lög að gilda um samningana ef ágreiningur rís, að meðtöldum úthlutunarreglum úr þrotabúi Landsbankans þegar það batterí kemur til álita - þrátt fyrir að gjaldþrotaskiptareglur varðandi úthlutun úr þrotabúum séu ekki á neinn hátt hluti af regluverki ESB (og þar með EES).
Möo, bretar og hollendingar gefa dómstólum okkar fingurinn. Þetta er auðvitað með algjörum ólíkindum því að venjan er sú (í ÖLLUM löndum hins vestræna heims) að varnarþing í svona máli eru í því landi sem gjaldþrota fyrirtækið er með heimili.
5. Ráðgefandi álit alþjóðlegra dómstóla er tekið út; að EFTA dómstóllinn geti fjallað um málið ef því er vísað til hans. Sambærilegt ákvæði núna sem fæst út úr íslenskum dómstólum en það er ekki hægt að hafa svona ákvæði afþví að samnningsaðilar geta ekki vísað til EFTA dómstólsins - það þurfa að vera íslenskir dómstólar sem gera það, en vegna þess að bretar viðurkenna ekki þá dómstóla (sjá nr. 4) þá gengur það auðvitað ekki upp heldur. Þeir vita líka að þesskonar álit yrði þeim ekki í hag. Skiljanlega vilja þeir losna alveg við þetta.
6. Auðlindaákvæðin eru farin, að ekki megi ganga á auðlindir í eigu þjóðarinnar til að greiða þessa skuld. Þetta er orðað á MJÖG loðinn hátt í Icesave frumvarpi nr. 2 og það er greinilegt að bretar og hollendingar ÆTLA sér að geta gengið á það sem þeir vilja ef (og ÞEGAR) til þess kemur. Þó það sé kannski ekki BEINT hægt að ganga að þessu samkvæmt frumvarpi nr. 2 þá verður þess ekki langt að bíða að heilbrigðiskerfið verði einkavætt, skólakerfið verði einkavætt osfrv. til að hægt sé að spara fyrir afborgunum. Við gætum alveg eins orðið eitt af ríkjum USA ef þetta ákvæði verður ekki haft með. Þetta þarf því að vera algjörlega kristaltært og skýrt orðað ef velferðarkerfið á að halda sér í einhverri mynd.
Icesavelög númer 2 er því ekkert annað en nauðasamningar sem eru reknir bæði ofan í kok á okkur og upp í rassgat. Það getur vel verið að við séum sigruð þjóð eins og Sigurður Líndal sagði, en það þýðir EKKI að við eigum að bjóða nauðgurunum upp á aðra umferð af hópnauðgun. Þeir geta bara drullast til að samþykkja Icesave lög númer 1 og hagað sér þannig eins og siðaðir menn en ekki nýlenduherrar fyrri alda.
Endilega að bæta við ef ég er að gleyma einhverjum fyrirvörum sem eru dottnir út.
|
Tugi milljarða ber enn á milli |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Andskotans djöfuls glæpahyski
4.3.2010 | 18:11
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hahaha nice try hjá Pólverjum
16.2.2010 | 17:59
"Jájá, við erum að flytja hingað 20!!!! GÁMA!!!!!!!!! af sígarettum til þess að EYÐILEGGJA þær, honest!!"
|
Förgun pólsks tóbaks stöðvuð |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)



